Verðskrá
Þessi verðskrá er frá því í hitt í fyrra en við ákváðum að halda henni inni.
Bensín / rafmagn / dísel /metan
Þú þarft alltaf að koma þér í landeyjahöfn (nema að þú reddir þér þyrlu auðvitað) og hvetjum við þig eindregið að skilja bílinn eftir svo þú þarft bara að greiða fyrir eldsneytið til að koma þér til og frá landeyjahöfn
Herjólfur
Samkvæmt verðskrá Herjólfs, kostar miðinn fyrir fullorðna 2.700 kr aðra leiðina, því mun þetta kosta þig 5.400 kr báðar leiðir. Nema auðvitað ef þú er námsmaður, öryrki, barn eða tekur bílinn með.
Sjá verðskrá herjólfs hérna
daRTopen RT-11
Við erum ekki búnir að ákveða verð en munum auðvitað halda því sem lægstu. Fyrirkomulagið okkar í fyrra sem við munum reyna að nýta aftur var að það var rukkað eitt gjald, innifalið var drykkir, skot, mótsgjald, refsingar, bjór, G&T, snakk og fleira sem boðið verður uppá á mótinu sjálfu.
Verð er: 6.500 kr
Lundinn
Frítt er inná Lundann alla helgina og því greiðir þú aðeins fyrir drykki. Verður ekki betra enda Lundinn einstakur áfangastaður fyrir alla gesti sem koma á eyjuna.
Gisting
Við getum því miður ekki boðið uppá heimagistingu, nema að þú þekkir einhvern persónulega í RT11 og suðar í honum að leyfa þér að gista.
Annars eru fjöldi gististaða í eyjum en þeir gætu fyllst hratt útaf lundapysjutímabilinu sem verður í hámarki þegar mótið er.
Matur
Fer auðvitað eftir því hvenær þú mætir á eyjuna, ef þú kemur snemma á laugardeginum þá mælum við með því að fá sér góðan hádegisverð á Gott, Tanganum, Einsa Kalda, Kráin osfrv.
Einnig þarf að fá sér góðan kvöldmat fyrir mótið sjálft (Matur er ekki innifalið hjá okkur). Því er gott að fara á næsta geggjaða veitingarstað um kvöldið og svo einnig mælum við sterklega með því að fara á Ranya kebab eftir Lundan (vonandi opinn) svo hungrið er ekki mikið þegar þú vaknar á sunnudeginum. Svo er það morgun/hádegismatur áður en farið er í bátinn heim...
Kostnaður:
Við höldum verðinu í lágmarki og engin helvítis bjórkort
Bara að mæta með fullan maga af góðum mat, sem sagt, mælum með að fara út að borða á einn af fjölmörgu veitingarstöðum eyjunar fyrir mótið
daRTopen mótið: ~6.500 kr