RT-11 daRTopen

Skemmtilegast pílumót ársins er haldið í eyjum á hverju ári, og í ár er það haldið 9.október

Fimmtudaginn fyrir Okt fundinn

Vestmannaeyjar

Það þekkja allir Vestmannaeyjar, og bjóðum við núna mönnum uppá að kíkja í helgar- eða dagsferð til eyja og taka þátt í skemmtilegasta pílumóti ársins. Mótið fer fram í klúbbhúsi okkar RT-11 manna nema að skráning verði það góð að við þurfum stærra húsnæði.

Dagskrá - Fimmtudaginn 9.október 2025

Mæting á keppnisstað og staðfest komu sína. Mót hefst í kjölfarið, um 20:00 leytið.

Spilað er í riðlum og svo úrslitakeppni þar sem aðeins einn sigurvegari verður krýndur.


Skemmtun eins og hún gerist best.
Ef menn vilja ekki spila í daRTopen eða eru einfaldlega í hvíld meðan aðrir spila verður ekkert slakað á í almennri skemmtun.

Lundinn er opinn fyrir þá sem vilja halda stemningunni gangandi frameftir öllu

Glæsilegur fyrsti vinningur !

Svakaleg VERÐLAUN

Við í RT-11 höfum ákveðið að sigurvegarinn fái í verðlaun:

  • 3x 100° myndavélar

  • 1650 lumen ledborði

  • Hringur (fyrir led og myndavélar)

Svo eina sem vantar til að setja upp þitt eigið pílusvæði er píluspjald og tölva !

Helgin verður EPIC

Ekki bara hlusta á okkur, spurðu hvern sem er sem hefur farið á daRTopen í eyjum hvort það hafi einhvern tíman klikkað hjá okkur að gera þetta að geggjuðum viðburði !

Myndband var gert fyrir daRTopen2024

DartOpen er með skemmtilegri fundum sem hægt er að mæta á. 11 menn hugsa svo vel um mann að þú skilur að RT er bara ein fjölskylda. Frábært og einstakt pílumót sem þú vilt alls ekki missa af!!!

Umsagnir

Rafn Sigurðsson RT-2

Mynd tekinn á daRTopen 2023 kl. 19:33

Hafðu samband